fann þetta á mbl.is lestu

Hermt er að söng- og leikkonan Jennifer Lopez hafi framið sérstæðar særingar sem fólust í því að hún kveikti í brúðarkjólnum sínum. Sagt er að JoLo hafi verið svo í mun að losa sig við púka hinnar kulnuðu ástar hennar og fyrrum unnusta hennar Bens Afflecks að hún hafi borið eld að Vera Wang-brúðarkjólnum sínum, sem kostaði litla 25.000 dali eða tæpar tvær milljónir króna, í einkennilegri athöfn sértrúarsöfnuðar sem notar skepnur í fórnir, að því er kemur fram í frétt breska dagblaðsins Daily Star af málinu.
Lopez mun hafa verið svo hrædd um að ástarlíf sitt væri dauðadæmt og að bölvun hvíldi á sér að hún framdi hin dramatíska gjörning samkvæmt ráðleggingum Merle Gonzalez, Ju-Ju miðils og „guðmóður“ hennar, sem er í karabíska Santeria-söfnuðinum sem fremur ýmiss konar særingar s.s. að fórna dýrum, kyrja og fara í trans.

Vinur Lopez sagði í samtali við The Star: „Jennifer er mjög hjátrúarfull. Hún vildi losa sig við allt það sem tengdist þessu dauðadæmda brúðkaupi. Hún lét eyðileggja kjólinn í helgisið sem átti að hreinsa áru hennar og lyfta burt svörtu skýi sem hékk yfir höfði hennar.“

Eftir brennsluathöfnina ku Lopez hafa sagt við þennan vin sinn: „Mér finnst eins og einhver hafi lagt á mig bölvun. Síðustu mánuðir hafa verið myrkir - ég þarf að byrja upp á nýtt og það að losa mig við þennan kjól var fyrsta skrefið.“

Göfugri áform fyrir trúlofunarhringinn

Lopez bíður ekki boðanna og hefur lagt á ráðin um mun göfugri athöfn til að losa sig við bleika demantstrúlofunarhringinn, sem kostaði 2 milljónir dala eða 160 milljónir króna. Hún hefur á laun haft samband við Sothebys og verður hringurinn boðinn þar upp. Andvirðið rennur til góðgerðarmála í þágu barna.

„Þetta er fyrir bý og við erum fyrir bý. Ég vil að eitthvað gott komi út úr þessu svo ég ætla að gefa hringinn til góðgerðarmála,“ segir Lopez.

BRENNA KJÓLINN HEHEHHEE FYNDIÐ BUT STRANGE SAMT


<br><br>FLOTTASTI GAURINN Á ÞESSARI PLÁNETU ER LEE RYAN !
hey kíktu á www.orange.is :D