Ég er að pæla í þessum “popp bransa”!!! mér finnst t.d. Christina Aguilera vera með alveg bara mjög fína rödd! en síðan þegar hún er á tónleikum og í myndböndunum hennar þá er hún varla í fötum!! ég meina það, til hvers?! vill hún frekar láta horfa á líkama sinn heldur en að hlusta á röddina hennar?! ég er ekki að fatta þetta! mér finnst að ef hún vill láta horfa á líkama sinn frekar en að hlusta á lögin hennar þá eigi hún bara að gerast nektardansmey einhversstaðar! Britney er svona líka! ef ég væri söngkona mundi ég vilja láta hlusta á lögin mín, ekki horfa á líkama minn eins og einhver nektardansmær! eins og þær, Britney og Christina, byrjuð líka sakleysislega! mér finnst þetta rugl!
kv. kikky