Hérna koma upplýsingar um leikkonuna Jessica Alba sem leikur í Dark angel…

Fullt nafn: Jessica Marie Alba.
Aldur: 22 ára.
Afmælisdagur: 28.apríl, 1981.
Heimilsifang: Suður Californiu.
Hár: brúnt.
Augu: brún.
Hæð: 1,70.
Skór: c.a.38.


Jessica var fædd í Ponoma, California. Fjölskylda Jessicu fluttist til Biloxi, Mississippi þegar hún var mjög ung.
Pabbi hennar var sem var í flughernum flutti síðan stuttu seinna með fjölskylduna til Del Rio, Texas. Seinna settist fjölskyldan fyrir í suður Californiu þegar Jessica var níu ára.
Jessica hafði langað að verða leikkona frá því að hún var fimm ára. Hún fór í fyrsta leiklistartímann sinn tólf ára.
Skömmu síðar var hún skráð hjá umboðsmanni/umboðsskrifstofu.
Árið 1993 fékk hún fyrsta hlutverk sitt í myndinni “Camp nowhere” Hún var bara ráðin í aukahlutverk, en var það heppin að aðalleikkonan hætti og þá fékk Jessica hlutverkið hennar.
Eftir þessa fyrstu bíómynd þá fór hún að leika í auglýsingum fyrir Nintendo og JC Penny og nokkrum lítið þekktum kvikmyndum.

Árið 1994 fékk hún fast hlutverk í sjónvarpsþætti “The secret world of Alex Mac”. Þetta sama ár fékk hún hlutverk í fyrsta þættinum af “Flipper” og hún sló svo í gegn í þeim þætti að hún var ráðin til að vera lengur og var úti í Ástralíu 1995 að taka upp fyrstu seríuna. Fyrsta serían gekk svo vel að það var tekin upp önnur sem Jessica var líka með í. Flipper var í sjónvarpinu frá 1995-1997. Síðan að Flipper hætti hefur Jessica leikið í mörgum sjónvarpsþáttum og bíómyndum.
Árið 1996 Jessica kom fram í “Venus rising” sem Eve. Árið 1996 kom hún líka fram í Chicago hope sem Marie.
Árið 1998 kom hún fram í mörgum sjónvarpsþáttum s.s Brooklyn South sem Melissa (veit ekkert hvaða þáttur það er), nokkrum mánuðum eftir það lék hún í tveimur þáttum af Beverly Hills 90210 og svo kom hún líka fram í þættinum Love Boat:The Next Wave.

Árið 1999 komu myndir af henni í mörgum blöðum og einnig fékk hún lítið hlutverk í myndinni “Never benn kissed”, seinna á þessu árið fékk hún aðeins stærra hlutverk í myndinni “Idle hands”.
Þessi tvö hlutverk hennar vöktu athygli í skemmtanaheiminum.
Stutt eftir þessi tvö hlutverk hennar fékk hún aðalhlutverkið í mynd sem kallast “Paranoia”.
Árið 2000 fór hún svo í áheyrnarpróf fyrir aðalhlutverkið í Dark angel og ég held að allir viti hvernig það hafi farið…

*Jessica reykir ekki.
*Hún trúlofaðist árið 2000 og giftist Michael Weatherly 2002.
*Hún er naut í stjörnumerki.
*Mamma hennar heitir:Cathy, pabbi hennar Mark, bróðir hennar Josh.

Ef þið viljið skrifa henni:
Jessica Alba C/O Chris Henze, Mgr.Somers, Teitelbaum, David
8840 Wilshire Boulevard #200, 2nd fl.
Beverly Hills, CA 90211
USA

Jæja..þetta er kannski ekkert brjálaðslega löng grein, en vona að þið hafið gaman að henni :)

kv. P3L1..:D
Later…;)