Auðunn er yngstur af þeim, mig minnir að hann sé 3 árum yngri en Simmi og Sveppi. Núna er Sveppi í Barneignarfríi (var að eignast stelpu ;) Til hamingju Sveppi) og hann verður í því næstu 2 vikur, á meðan fær Auddi til sín margar fræga og flotta gestastjórnenda. Simmi er líka búin að taka sér langa pásu enda líka orðinn pabbi og hann er að fara að starfa sem kynnir (við hlið Jóa sem var líka í 70 mín.) í Ísleska Idol-inu. Eins og ég sagði áðan var Jói líka í 70.mín en hann og Simmi byrjuðu með þennann þátt.

Sveppi kom inní þáttinn þegar hann var að labba hringinn í kringum landið. Auðunn eða Auddi eins og hann er ávallt kallaður byrjaði í földum myndavélum þegar en þegar Jói hætti og þá voru það bara Simmi og Sveppurinn í settinu. Þegar Sveppi fór til Frakklands í heilt ár tók Auddi við af honum.

Pínu upplýsingar um Audda:

- Hann er fæddur og uppalin á Sauðárkróki. Hann fæddist 8. Júlí árið 1980 og hann er 23 ára ;)
Hann vegur 77 kíló og Notar skó nr. 42.
Hann tók þátt í fyndnasti maður íslands árið 2001.
Hann er þekktur fyrir góða kýmni, loðna bringu og er mesti gikkur allra félaganna. Hann fílar Steven Seagal og finnst hann vera geggjaður töffari

Uppahalds:
matur: Fylltur kjúklingur “a la mamma ”
drykkur: Pepsi…of course
mynd: Fight Club / Shawshank Redemption / Dumb and Dumber
leikari: Denzel Washington / Brad Pitt
leikkona: Helga Braga
Skemmtistaður: Hótel Mælifell, Sauðárkróki
Lið í Enska boltanum: Manchester United
Lið í Ítalska boltanum: Parma
Lið í Formúlunni: Williams
Besta bókin: Gauragangur

Heimildir: www.popptivi.is