Nú hafa aðdáendur Britney Spears verið mikið að spá í því hvort hún ætli að gera eitthvað á Mtv Video Music Awards í New York í næsta mánuði… en flestir vilja að hún geri eitthvað flott atriði eins og hún gerði árið 1999, 2000 og 2001…

Málið er að það er búið að staðfesta að hún verði á svæðinu… enda er hún búin að taka þátt í auglýsingu sem var gerð fyrir hátíðina… En það er hvorki búið að staðfesta hvort hún taki eitt lag eða veiti verðlaun… eða bara verður á svæðinu.

Allavega það hefur mikil leynd verið yfir þessu og aðeins eitthvað 4 lög staðfest fyrir hátíðina sem er frekar lítið. En eins og flestir þeir sem hafa horft á þessa hátíð vita þá er á hverju ári alltaf gert eitthvað óvænt…

Nú eru sjónvarpsþættir eins og Eintertainment Tonight að segja að Britney, JLo og Madonna hefji afhendinguna með byrjunaratriðinu. Þær eiga víst allar að syngja saman “Like a virgin” í tilefni þess að Madonna hefur verið í bransanum í 20 ár.

Vonandi er þetta satt því það væri alveg frábært að sjá þær allar á sviðinu og myndi atriðið fá mikla athygli fjölmiðla um allan heim.

Ef ég man rétt verður þetta 4.september næstkomandi. :)<br><br>________________________________________________________________________________________

<b>X-S</b> árið 2007 :)