Kvikmyndin 8 Mile, sem skartaði rapparanum Eminem í aðalhlutverki var hálfgerð ævisaga hans eða allt að því. Nú á að ganga lengra og gera söngleik út frá myndinni. Eminem mun væntanlega ekki leika á sviði en hann segist vera hæstánægður með þessar fréttir og verður einn af framleiðendum söngleiksins.

Eminem sér þennan söngleik sem hálfgerða West Side Story fyrir nútímann. Hann hefur einnig skrifað undir 3 ára samning við Universial Pictures þar sem hann skrifar og leikur í kvikmyndum. Það fer hann í eftir að Evróputúr hans er lokið í sumar.