Leikarinn Brad Pitt er að íhuga að innrétta bar eða hótel fyrir félaga sinn, milljarðamæringinn Rande Gerber, sem er eiginmaður fyrirsætunnar Cindy Crawford. Gerber þessi á samtals 20 eignir alls staðar um heiminn undir nafninu The Whiskey Bar. Pitt er ekki menntaður innanhúsarkitekt en hefur samt sem áður haft mikinn áhuga á allskonar hönnun í gegnum árin og hannaði meðal annars sturtu í sínu eigin húsi sem fyllir út baðherbergið og líkist einna helst regni.

Brad er hefur undanfarið eytt miklum tíma í teikna upp allskonar hugmyndir að húsgögnum og íbúðum. Þeir félagar eru víst ennþá aðeins í umræðustigi málsins en Pitt er víst nokkuð spenntur fyrir því að prófa þetta samkvæmt vinum og vandamönnum hans. Fyrir þá sem vita ekki þá er Brad Pitt menntaður sem blaðamaður.