Síðastliðinn laugardag var grínistinn Aaron Barschak handtekinn fyrir lauma sér inn í 21. árs afmælisveislu breska prinsins William og vera með einhvern óskunda. Þemað í afmælinu var “frá Afríku” og mætti Aaron klæddur eins og Osama Bin Laden. Þegar prinsinn var að flytja ræðuna sína stökk Aaron upp á svið og reif af honum hljóðnemann, áður en öryggisverðirnir náðu að yfirbuga hann.

Aaron Barschak hefur áður verið með einhverja svona gjörninga og hefur meðal annars gert prakkarastrik gegn borgarstjóra London og grínistunum Graham Norton og Terry Jones