Kæru hugarar.

Ég vil vekja athygli ykkar á hinu ágætasta máli, að Davíð Oddson var mjög líkur dæmigerðum gyðingi á tímum Jesús í útliti, en Jesús hafði líklega venjulegt útlit með ólíkindum þar sem engu orði er minnst á útlit hans í Biblíunni, þeirri kærleikans bók bókanna.

Vísindamenn af ýmsu tagi hafa tekið sig saman og reiknað út hvernig líklegast sé að Jesús frá Nasaret hafi verið út, hvernig hinn venjulegi gyðingur leit út á þessum dögum, og niðurstaðan líkist einmitt honum Davíð okkar blessuðum. Davíð veitti ekkert af smá sólarglætu samt til að fá þennan fagra lit. Göngum með sól í hjarta til kosninga á morgun.

Ég hef hér slóð á vefsíðu nokkra sem sýnir hvernig Jesús Drottinn líklegast leit út, en þetta andlit er fundið með hávísindalegum útreikningum á myndum, hauskúpum og slíku frá tímum Jesús Krists. Andlit þetta er “meðaltal” allra andlita gyðinga frá þessum tíma.

Þessu fylgir hvatning til hans Davíðs okkar, þessa myndarlega manns að reyna að líkjast Jesús Kristni Drottni vorum að öðru leyti.

Copy-pasta þessa slóð til að sjá hvernig Jesús leit út í alvörunni. Ef einhver yndæll kann að gera link fyrir mig er það vel þegið.

http://www.popularmechanics.com/science/research/2002/12/real_face_jesus/print.phtml