Kryddpían ofsalega Geri Halliwell, játaði það fyrir útvarpsspéfuglinum Howard Stern að hún hefði einu sinni átt ástarleik við konu.

Geri sagðist þekkert vilja segja meira um verknaðinn eða hvenær þetta gerðist. Hún sagði, “það eina sem ég vil segja, er að þetta gerðist einhvertíma á milli þess sem ég var 16 til 30 ára”. Geri fjallaði mjög opinskátt um kynlíf sitt og sagðist ekki hafa haft samfarir í meira en mánuð.