Af einhverri undarlegri ástæðu hefur hópur aðdáenda Kylie Minogue, sem kalla sig Kyliefansunited, beðið hana opinberlega um að hætta að sýna á sér rassinn. Þeir eru víst búnir að fá nóg af því að sjá hana dilla sér í “hotpants” og stuttum pilsum og telja þau bossann skyggja á hæfileika hennar sem söngkonu. Rass hennar varð fyrst heimsfrægur í myndbandinu við lagið “spinning around” þar sem hún lék sér á hjólaskautum í gylltum “hotpants”, við mjög góðar undirtektir karlmanna.

Þessi herferð Kyliefansunited kallast “Ban the Bum” eða bönnum bossann á góðri íslensku en ég skora á alla lesendur hamsturs til að taka ekki þátt í þessu rugli. Ég veit ekki hvað mundi gerast ef hún legði rassinn á hilluna, milljónir karlmanns- og lespíuaðdáenda hennar mundu líklega fara í stríð og leggja heiminn í rúst. Þetta finnst mér bara heimskulegt að ger þetta því akkuru má hún ekki sýna rassinn á sér ? Það fatta ég ekki allveg….