Það muna nú allir þegar þetta æði gekk yfir með spice girls sem samanstendur af Mel C, Mel B, Emmu, Victoriu og Geri.

En núna er ég búin að lesa fullt af einhverjum greinum hér og þar um að þær hafi verið eitthvað að íhuga að spila aftur saman og hafi hist allar heima hjá Victoriu og farið eitthvað að ræða þetta mál og eins og ég las fór Mel C fyrst út af fundinum og sagði að þær myndu aldrei koma aftur saman og spila og þetta væri bara hræðilega asnaleg hugmynd.

Ég var nú samt að lesa inn á einni síðu hér á netinu áðan að Mel C hafi sagt að stelpurnar hafi áhuga á að koma saman en þær höfðu aldrei hist síðan hljómsveitin hætti og sagði hún \\\“Það var ægilega notalegt að hittast aftur og við gátum rætt það sem varð til þess að uppúr sauð á sínum tíma\\\”.
Einnig var sagt á þessari síðu að þær ætluðu að taka rúntinn um Evrópu.

Hvað finnst ykkur um það ef Spice Girls myndu byrja að spila aftur saman, myndu þið halda að þær myndu ná að takast að verða jafn vinsælar og þær voru…

Kv. Hallat