Jennifer lopez er ein skærasta stjarnan í dag. Hún er nú nýbúin að gefa út geisladisk sem heitir this is me…then sem inniheldur m.a. lagið Jenny from the block. Einnig koma fljótlega út tvær myndir með henni í aðalhlutverki þ.e. myndirnar Gigli og maid in Manhattan. Svo er hún búin að gefa út ilm sem heitir Glow. Í fyrra haust giftist hún í annað sinn, þá dansaranum Chris Judd. ÞAð hjónaband entist nú ekki langi og er hún núna trúlofuð leikaranum Ben Affleck. Hún hefur leikið í þónokkrum myndum t.d. Enough, The wedding planner, the cell, Anaconda, Selena, out of sight, u turn, blood and wine og svo er verið að kvikmynda mynd sem heitir Jersey girl. Einnig hefur hún áður gefið út þrjá geisladiska.
Þórunn ;)