Fyrirsætan og leikkonan breska, Elizabeth Hurley hefur samið við bandaríska kvikmyndaframleiðandann Steve Bing um að hún fái meðlag upp á 14 milljónir króna á ári með syni þeirra sem er núna 8 mánaða gamall en þetta samkomulag náðist um þetta fyrir dómi í vikunni.

Í nóvember á seinasta ári sagði Hurley að Bing væri faðirinn en Bing sagði að það væri ekki rétt en það þurfti því að láta DNA-próf ráða um það hvort hann væri faðirinn og kom þá í ljós að hann væri faðir sonar Hurley.

Bing hefur framleitt kvikmyndi í Hollywood og skrifað sjónvarpsþætti en hann hefur einnig erft mikil auðæfi.
Hurley hefur leikið í mörgum kvikmyndum og má þá nefna meðal annars Austin powers og Serving Sara

Með jólakveðju, Hallat