BAndaríska kvikmyndastjarnan Nicholas Cage og Lisa Marie Prestley gengu í hjónaband í laumi um helgina á hóteli á Hawaii. Lisa Marie er dóttir Elvis Presley og fyrrverandi eiginkona söngvarans sérlundaða Michaels Jacksons. Gekk parið í hjónaband viku áður en 25 ár verða liðin frá dauða föður brúðarinnar.

Börn þeirra frá fyrri hjónaböndum voru viðstödd athöfnina. Tólf ára sonur Cage, Weston, var þarna auk tveggja barna Lisu frá fyrsta hjónabandi hennar, dóttirin Daniella Riley, þrettán ára, og tíu ára sonur, Benjamin Strom.

Skömmu eftir að sérstöku sex ára hjónabandi Cage og Patriciu Arquette lauk hóf hann að hitta Lisu Marie. Cage er 38 ára og hefur leikið í mörgum þekktum myndum, m.a. mynd David Lynch, “Wild at Heart”.

Síðustu fréttir herma að Lisa Marie eigi von á barni en það þótti greinilegt við frumsýningu myndar Cage “Windtalkers” fyrr í sumar.
HELLO!