Nokkrar Fréttir Britney Spears hefur ákveðið að taka sér hlé frá öllu eftir að hafa verið á tónleika ferðalgi sínu “Dream within a Dream” í allt sumar. Hún áætlar að verða í frí út þetta ár. Svo í febrúar ætlar hún að fara aftur í stúdíó að taka upp nýja plötu. Hún áætlar að sú plata komi út einhvertímann árið 2003.


—————————————————————-


Jennifer Lopez og Ben Affleck eru hætt að leyna því fyrir ljósmyndurum að þau séu saman. Í síðustu viku náðist mynd af þeim þar sem að þau voru að kyssast í blæjubíl hans fyrir utan kaffihús í L.A. Jæja þá er hún víst ekki á Lausu! ;)


—————————————————————-


Brad Pitt er kannski þekktur fyrir að leika hættulega gaura í myndum sínum en það er hins vegar konan hans Jennifer Aniston sem náði heldur betur að hræða hann. Jennifer Aniston gengur nefninlega í svefni og einu sinni gekk hún útúr húsi þeirra hjóna, þá fór þjófavörnin í gang og vaknaði Brad við það. Brad Dauðbrá þegar hann heyrði í þjófavörninni og sá Jennifer hvergi.