J-Lo og líf hennar.... Blatz

Já það kom loksins að því að Jennifer Lopez sótti um skilnað við eiginmann sinn, Chris Judd. Hún gerði það síðasta fimmtudag.

Skilnaðarskjölin voru gerð í L.A. daginn eftir að Lopez hélt upp á 32. afmæli sitt.

Lögfræðingar þeirra hjóna segja að þau muni halda áfram að vinir eftir skilnaðinn.. eitthvað hljómar þetta kunnuglega.

Parið, sem kynntist við gerð myndbandsins \“Love Don\'t Cost a Thing,\” giftist í september á síðasta ári og hættu saman 2. júní, ef marka má skjöl lögfræðinganna.

Judd var annar eiginmaður dívunnar. Fyrst var hún gift Ojani Noa, en það hjónaband endaði, eins og svo mörg hjónabönd í Hollywood, með skilnaði árið 1998 eftir u.þ.b. ár.

Hin dansandi leik- og söngkona hefur nýlega verið tengd við leikarann Ben Affleck, meðleikara sinn í næstu mynd hennar \“Gigli\”.
Ef marka má eina greinina, bauð Affleck Lopez út að borða á afmælisdegi hennar og gaf henni asskoti flott demantsarmband.

Jennifer Lopez á 2 myndir í viðbót í vændum þetta ár og er einnig á fullu við gerð næstu plötu hennar.
Á síðustu tveimur árum hefur hún einnig hannað sína eigin fatalínu og opnað Kúbverskan veitingastað í Pasadena, nálægt L.A., þar sem hún réð sinn fyrri fyrrverandi eiginmann Ojani Noa til að stjórna því.. Eins og flestir hugarar vita er hún einnig búin að skapa sitt eigið ilmvatn og guð má vita hvað hún gerir næst – kannski hún stofni sitt eigið útgáfufyrirtæki…?

Já þessar Hollywood stjörnur eiga sér engan líkan..
Vonum bara að henni J-Lo gangi vel í þessum brönsum sínum og giftist Affleck og skilji ekki… eða eitthvað!

-=Peace=-
h4114