Lisa Kudrow, Arnold Schwarzenegger og Tom Green Blatz

Í dag eiga margir afmæli - m.a. Lisa Kudrow, Arnold Schwarzenegger og Tom Green.

Lisu Kudrow þekkja allir, ætla ég rétta að vona.. Ef ekki þá leikur hún hina hrikalegafyndnuogskemmtilegu Phoebe. Hún er í dag 39 ára gömul, eins og sumir heyrðu kannski á Bylgjunni í morgun.
Eiginmaður hennar er Michel Stern, þau giftust 27. maí, 1995. Hann er franskur. Hún var einnig í sambandi við Conan O'Brien seint á níunda áratugnum.
Pabbi hennar er Lee Kudrow, sérfræðingur í hausverkjum - án gríns!!! – Pældu samt að skíra dóttur sína Lisa og heita Lee… æi allavegana!
Mamma hennar er Nedra Kudrow.
Eldri systir hennar heitir Helene Sherman hún er listamaður
Hún á tvo bræður David Kudrow og Derrick Kudrow
Sonur hennar er Julian Murray; fæddur 6. maí, 1998.
– Vissuð þið að hún var fyrst ráðin í hlutverkið Roz í gamanþáttunum Fraiser? Hún var rekin…
Eða að hún er með B.S. gráðu í líffræði?.. já maður er alltaf að læra eitthvað nýtt:)




Arnold Schwarzenegger… hér er ein schnilldar síða um hann: http://www.schwarzenegger-interactive.com/ – ekkert smá flott!! Hann er 55 ára í dag karlinn. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um hann því að hann er ekki beinlínis í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér - frekar einhæfur greyið…
En hér eru nokkrar staðreyndir sem ég kóperaði bara og þið getið lesið ykkur til skemmtunar eða sjokkerunar.. (sjokkerunar.. hmm)

Height: 6 “2”
Competition Weight: C 240 LBS
Normal Weight: C 220 LBS
Chest: 57
Arms: 22
Waist: 31
Thighs: 28
Calfs: 20




Tom Green – pshycho dauðans. Já ég held að flestir séu sammála um það að þessi maður er ekki alveg heill á geði. En það eru margir sammála um það að hann er hræðilega fyndinn – ég persónulega hef mín takmörk á það sem mér finnst fyndið og hann er alveg á þessum mörkum.. en hann getur nú samt alveg verið svolítið fyndinn :-P
Fyrir risaaðdáendurna er að koma ný mynd út eftir hann í október (þ.e.a.s. í USA). Hún heitir Stealing Harvard… frumlegt nafn.
Flestir vita að Tom er kanadískur í húð og hár og blóð og eyrnamerg.

Þessa spurningu og svar má sjá á Q&A síðunni hans:

Q. What do you guys do to relax ?
A. We snowboard during the winter. Tom and Phil skateboard during the summer. Tom claims to masturbate everyday to help him relax, none of us have ever witnessed this first hand to verify his claim. We are very thankful for that. We do believe him however. Why the hell would he lie to us.

Já gaman að þessu..
Í dag er gaurinn 31 árs og er stoltur af því.
Foreldrar hans koma oft fram í þættinum Tom Green Show
Einnig á hann yngri bróður, Joe Green.



Já vonandi var hræðilega hrikalega skemmtilegt að lesa þessa grein..
– untill we meet again
H