Sharon Osbourne Sharon hefur verið greind með krabbamein, ég veit samt ekki hvers konar krabbamein hún er með því fjölskyldan hefur ekki viljað gefa neinar upplýsingar um það. Þeim finnst þetta vera hluti af hennar einkalífi og að hún fái að ráða því hvort nánari lýsingar á ástandi hennar komist í blöðin - sem er nú ósköp eðlilegt.
En læknarnir hennar hafa látið hafa það eftir sér að þetta er viðráðanlegt og að hún eigi að ná sér að fullu aftur. Hún var skorin upp í vikunni og liggur nú á sjúkrahúsi að jafna sig.
Ozzy hefur tekið sér frí frá vinnu til að vera við hlið hennar sem og börnin þeirra. Þau ætla að vera hjá henni þar til henni fer að líða betur.
Vonandi bara að hún jafni sig fljótt.

Kv. Alfons
-Song of carrot game-