Ronan Keating Ef að þú ert kvennmaður og Alveg óð í Boyzone, Skaltu ekki lesa lengra!!!

Jú, gott Fólk. Ronan Keating Hefur sagt að það séu engar líkur á Því að við fáum að heyra í Boyzone aftur! Hann segist ekkert hafa talað við restina af Bandinu í Marga mánuði vegna þess að hann segir þá vera Afbrýðisama út í sig!!


“Boyzone eru alveg búnir og ég held að við komum aldrei saman aftur” segir Ronan Keating. “Ég veit ekki einu sinni hvað hinir strákarnir eru að gera. Því miður þá höfum við fjærlægst hvorn annan og tölumst ekki við lengur.”

Keith Duffy fyrrum Boyzone félagi sakar Ronan um að vera eigingjarnan með því að útiloka “comeback”. “Ronan gerir mig rosalega reiðan. Hann hugsar bara um sjálfan sig. Hann vill í raun ekki tala við neinn nema að sá hinn sami sé súperstjarna.”

Ronan er ekki á sömu skoðun. “Við tókum þessa sameiginlegu ákvörðun að taka okkur hlé. Ég er svo sá eini sem hef náð einhverjum árangri í tónlistinni eftir það. Ef einhver annar af okkur myndi hafa gert góða hluti eftir Boyzone myndi hann hugsa það nákvæmlega sama og ég. Ég þakka þeim bara fyrir samstarfið og óska þeim góðs gengis í hverju sem þeir taka sér fyrir hendur.”