Jú gott Fólk, Allt getur Skeð!!!

Liam Gallagher, Gaurinn sem syngur í Oasis, Er byrjaður að syngja meðmeð Íslandsvinunum í Prodigy. Gallagher og Liam Howlett, aðalmaður Prodigy, eru orðnir hinir mestu mátar en þeir voru báðir með Appleton systrunum úr All Saints. Þeir eru búnir að semja lag sem kemur líklega út seinna á árinu. \“Ég hef unnið svolítið með Prodigy og það er aldrei að vita nema það verði gefið út,\” var haft eftir Gallagher. \“Þetta er lag sem Liam bað mig að syngja. Þetta er flott lag. Yfirleitt leiðist mér danstónlist en þetta er alvöru rokk og ról. Mér var ekki sagt hvernig ég ætti að gera það. Ég geri það bara á minn hátt.\”