Cruise & Cruz...ekki lengur! Ég hafði verið að bíða eftir þessu í nokkra mánuði, og loksins, loksins gerðist þetta! Hinn hryllilega lélegi leikari Tom Cruise hefur slitið sambandi sínu við ÓÞOLANDI spænsku pissudúkkuna sína, Penelope Cruz. LOL!!!!

Eftirfarandi er cpoy-paste-að af www.mbl.is

Rétt rúmu ári eftir að hann lét eiginkonuna sigla sinn sjó hefur bandaríski kvikmyndaleikarinn Tom Cruise sagt upp spænsku leikkonunni Penelope Cruz, að því er segir í frétt BANG Showbiz. Cruise hafði beðið Cruz um að giftast sér og hafði parið í hyggju að láta verða af því á næstunni.

Það er ekki nóg með að Cruise vilji ekki giftast Cruz hefur hefur hann beðið hana að hafa sig og sitt hafurtask á brott úr íbúð hans í Los Angeles.

Samband þeirra mun hafa dalað jafnt og þétt frá því um jólin þegar Cruise varði tíma sínum með fyrrverandi spúsu sinni, Nicole Kidman. Þessi vinátta þeirra fyrrum hjóna mun hafa verið eilíft þrætuepli í sambandi Cruise og Cruz. Það bætti svo ekki úr skák að Cruise skyldi neita að fara með Cruz á Óskarsverðlaunaafhendinguna. Kornið sem fyllti mælinn hefur væntanlega verið þegar Cruise lýsti því yfir að hann myndi ávallt elska Kidman.

Cruise og Cruz kynntust við töku á myndinni Vanilla Sky og herma sögusagnir að ástarævintýri þeirra hafi hafist þá og það hafi verið ástæðan fyrir því að tíu ára hjónaband Cruise og Kidman fór út um þúfur.

Hjónabandi Cruise og Mimi Rogers lauk árið 1990 og þá var Cruise óðara búinn að biðja Kidman. Þau ættleiddu síðar tvö börn.

Lögmaður Cruise, Bert Fields, vísar á bug fregnunum um sambandsslit Cruise og Cruz.


Smokey…