Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur hafnað 1,2 milljónum dollara fyrir að sitja nakin fyrir Playboy. Stúlkan, sem er 27 ára, segist aldrei ætla að láta birta myndir af sér þar sem “það er ekki hennar stíll.”Stúlkan segist hinsvegar vera tilbúin að þiggja eina milljón punda frá Soldáninum af Brunei og syngja í afmælisveislu sonar hans. “ það verður ábyggilega erfitt þar sem ég er vön að syngja fyrir þúsundir manna en ekki hundruðir,” var haft eftir söngkonunni íðilfögru. Henni hafa einnig boðist ýmis kvikmyndahlutverk en eins og alþjóð veit hóf hún ferilinn í sápuóperunni um Nágranna.
HELLO!