Söngkonan Geri Halliwell er sögð hafa í hyggju að láta fjarlægja húðflúr sem hún ber á bakinu og telur að þau geti komið í veg fyrir möguleika sína til þess að ná árangri sem leikkona í kvikmyndaborginni Hollywood.

Söngkonan er sögð bera stjörnu og hlébarða milli herðablaðanna, en hún mun hafa fengið sér húðflúr þegar hún hætti í Spice Girls árið 1998. Nú er hún sögð vilja fjarlægja húðflúrið og mun hafa fengið lýtalækni söngkonunnar Cher til þess að annast verkið með geislatækni, en söngkonan mun hafa sagt vinum og kunningjum frá hugmyndum sínum á Óskarsverðlaunateiti í liðnum mánuði.
HELLO!