Bandaríski sveitasöngvarinn Lyle Lovett, sem hér á landi er þekktasur fyrir að hafa verið kvæntur leikkonunni Juliu Roberts, er á sjúkrahúsi í Houston í Texas eftir að hafa fótbrotnað ílla í átökum við naut. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

Lovett, sem er 44 ára, var fluttur á sjúkrahús á miðvikudag eftir að hafa lent í átökum við naut í búgarði fjölskyldu sinnar í nágrenni Houston.“ Frændi hans var að eiga við nautið þegar það losnaði,” sagði talsmaður sjúkrahússins. “Þegar hann reyndi að aðstoða hann steig nautið á hann.” Frændi Lovetts, Calvin Klein, var einnig fluttur á sjúkrahús eftir atvikið, vegna eymsla í brjósti.
HELLO!