Erfiðleikar ... Hlutirnir virðast ekki vera alveg að gera sig hjá henni Britney Spears þessa daganna.
Fyrir það fyrsta var ég að lesa í slúðrinu að hún hafi verið að taka upp einhverja auglýsingu, líklegast fyrir Pepsi, þegar hún varð fyrir því óláni að fá fötu fulla af hlandi hellt yfir sig.
Þetta gerðist þegar verið var að taka upp fyrrnefnda auglýsingu í einhverju húsasundi í Los Angeles.
Gleymst hafði að láta fólkið sem bjó í hverfinu að það stæði til að taka upp auglýsingu klukkan 4 um nóttina. Þannig að þegar að fólkið vaknaði upp við sterka ljóskastara og sama lagið spilað aftur og aftur um hánótt varð það vægast sagt pirrað, skiljanlega kannski. Fólkið byrjaði á því að öskra út um gluggana hjá sér að biðja þau um að hætta upptökum, en allt kom fyrir ekki upptökurnar héldu áfram.
Þannig að pirruðu íbúarnir náðu í fötur sem voru með hlandi í og heltu yfir popp prinsessuna ! Góð sturta það.

Svo ganga þær sögur um allt núna að Britney og Justin úr N'sync séu hætt saman. En plötufyrirtæki hennar dregur það í efa, allaveganna hafa þau ekki fengið neinar fréttir þess efnis.
En allaveganna hefur sést til hennar á börum borgarinnar með einhverjum vinkonum sínum og þá er auðvitað þar með talið að hún sé að drekkja sorgum sínum.
Sambandsslitin munu vera vegna þess hversu ótrúlega upptekin þau bæði eru, svo þau fá ekki mikin tíma saman.
Sem og hversu öfundsjúk Britney var yfir því að Justin var að kyssa einhverj stelpu í nýja myndbandinu sínu.
En þetta kemur flestum í opna skjöldu þar sem Britney var að tala um bara núna í janúar að tala um að hún vildi giftast Justin og eignast með honum börn.
En einhverjir vinir þeirra voru farnir að sjá bresti í sambandinu hjá þeim.
Svo er bara spurningin hvort þetta sé allt satt og rétt og þá er stóra spurninginn hver hætti með hverjum ? En það eru víst uppi ólíkar kenningar um það.

Svo má til gamans geta að litla systir Britney, Jamie Lynn Spears, líka að reyna að “meika það” í bransanum.

Kv. Alfons
-Song of carrot game-