Freddie Prinze Jr.
Í dag á hinn eini sanni Freddie Prinze Jr. afmæli!

Hann fæddist 8. mars árið 1976 í Alburquerque, New Mexico, USA. Hann er sem sagt 26 ára í dag. Pabbi hans var gamanleikari, Freddie Prinze, en hann framdi sjálfsmorð þegar Freddie Prinze Jr. var lítill. Mamma hans - Kathy Cochran.

Hann var í Alberquerque's La Cueva High School og hann var víst enginn prýðisnemandi, frekar mikill tossi greyið:)
Í 12. bekk voru allir með það á hreinu hvað hann vildi verða þegar hann yrði eldri. Hann byrjaði að leika í leiklistarklúbb skólans og með The Duo Drama Company.

Þegar hann útskrifaðist árið ‘94 fluttist hann til LA til að einbeita sér betur að leikferli sínum. Hann fékk strax lítil hlutverk í nokkrum þáttaröðum, þ.e.a.s. sem aukaleikari í nokkrum þáttum.

Freddie varð frægur fyrir leik sinn með Claire Danes, Peter Gallagher og Michelle Pfeiffer í ’To Gillian On Her 37th Birthday'.
Þar lék hann Joey Bost, óásættanlegan kærasta Claire Danes, þar sem hann var þakinn gervitattúum og -götum. “Það var gott að kyssa Claire” man hann eftir. Hann segir samt að hann hefði verið stressaður því hann hafði ekki kysst margar stelpur.

Næsta verkefni fyrir hann var hlutver í svartri húmorsmynd “The House Of Yes”. Myndin hefur hlotið nokkur verðlaun.

Hlutverkið sem Freddie er þekktastur fyrir er hryllingsmyndin “I Know What You Did Last Summer.” (sem er nú ekkert hryllileg…)

Hann lék líka í gamanmyndinni “She's All That” á móti Rachael Leigh Cook. “Að leika Zack Siler er eins og að lifa draum hvers stráks. Hann er vinsælasti strákurinn í skólanum, formaður nemendaráðs. Hann er eins og allt sem ég var ekki í miðskóla.” Segir Freddie um leik sinn í myndinni.

Í apríl á síðasta ári trúlofaðist hann svo leikkonunni vinsælu úr þáttaröðunum “Buffy the Vampire Slayer”, Sarah Michelle Gellar.
Þau leika saman í myndinni Scooby Doo.
Prinze og Gellar (sem hafa bæði verið nefnd ein af 50 fallegasta fólkinu) léku einnig saman í myndinni “I Know What You Did Last Summer.”

Skemmtilegar staðreyndir:

Fullt nafn: Freddie James Prinze Jr.
Gælunafn: Pie
Fæðingardagur: March 8, 1976
Fæðingarstaður: Albuquerque, New Mexico, USA
Þjóðerni: 1/4 Puerto Rican, og 3/4 Caucasian
Hæð: 6'1“
Þyngd: 155 lbs
Stjörnumerki: Pisces
Systkini: engin
Gæludýr: Rotweiller, Flash og Akita
Vinir úr Hollywood: Matthew Lillard
Fyrsta hlutver: Í þætti af Family Matters. Sagði fjórar línur.
Tómstundir/áhugamál: Hefur áhuga á bardagalistum t.d. Kenfo, Muay Thai box og Ju Jitsu (hefur æft það síðan hann var fimm). Hann nýtur þess líka að horfa á gamanmyndir, teiknimyndir og vera í tölvuleikjum:)
”áhugaverðar" staðreyndir: -Freddie er örvhentur.
-Hann er mikill aðdáandi Star Wars.
-Hann er með ör á kinninni síðan hann var í Star Wars leik með vinum sínum þegar hann var sex ára.
Uppáhalds..:
..tími dags er seint á eftirmiðdegi.
..hljómsveit er Garbage.
..litur er grænn.

Vonandi var þessi grein áhugaverð fyrir einhverja:)

Halla