Julia Roberts - nýja slúðrið ! Eins og flestir vita er Julia Roberts með Danny Moder, hann yfirgaf konu sína til þess að vera með henni. Þ.e. skildi við hana vegna þess hversu hann og Julia voru ástfangin.
Julia gerðist meira að segja svo frökk að bjóða (fyrrverandi) konu hans,Veru, peninga fyrir það að ganga frá skilnaðnum hratt og örugglega, ekki var Vera mjög ánægð með það.
Er ekkert á því kannski að þiggja penginga frá konunni sem stal manninum hennar af henni.
En nú virðist vera komið smá babb í bátinn hjá Juliu og Danny, því hann fór um daginn heim til sinnar fyrrverandi að ná í dótið sitt, og samkvæmt slúðrinu þá varð þetta ástarfundur. Eftir að Vera sagfi honum frá því hversu mikið hún hefur saknað hans, stóðst hann hana ekki lengur. ;)
Julia varð alveg brjáluð þegar hún frétti af þessu því að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Danny heldur framhjá henni með fyrrverandi konu sinni.
Eftir að hann hafði haldið framhjá í fyrra skiptið hélt Julia ekki að hann myndi gera það aftur því strax eftir það sótti hann víst um skilnað við frúnna.
En greinilegt er að lengi lifir í gömlum glæðum !
Svo er bara spurning hvað gerist næst ! Hvernig endar þessi “ástarþríhyrningur ?” …

Kv. Alfons
-Song of carrot game-