Afmælisbarnið
Í dag á körfuboltakappinn Shaquille O'Neal afmæli!
Hann er fæddur árið 1972 og er því 30 ára í dag.

Hann er án efa einn besti körfuboltamaður okkar tíma. Ásamt Michael Jordan auðvitað:)

Staða: C
Fæddur: 6. mars ‘72
Hæð: 2,16 (díses!)
Þyngd: 142,9 kg. (enginn smá massi)
Fæddur sem: Shaquille Rashaun O’Neal
Fæðingarstaður: Newark, New Jersey, USA
Menntun: Louisiana State

Hann var vinningshafi Maurice Podoloff Trophy sem verðmætasti leikmaður NBA leiktíðina 1999 - 2000.

Eins og flestir vita spilar Shaq með L.A. Lakers.

Í gærkvöldi og í nótt fóru níu leikir fram í NBA-deildinni. Mesta athygli vakti leikur L.A. Lakers og Houston Rockets því Shaq klæddist peysu frélaga síns, Kobes Bryant, í upphitun, en Bryant hóf tveggja leikja bann fyrir slagsmál síðasta föstudag.
O'Neal átti stórleik í 95-79 sigri á Rockets og tileinkaði 36 stig og 14 fráköst Bryant, vini sínum.

Frábær körfuknattleiksmaður - að flestra mati. Mjög líklega allra - a.m.k. þeirra sem horfa á körfuna.