Afmælisbarn 21. febrúar
Blitz allir!

Í dag á fegurðardísin Jennifer Love Hewitt afmæli! (og líka pabbi - til hamingju)

Hana þekkja margir úr þáttunum Party of Five eða náttúrulega úr myndunum I Know What You Did Last Summer og I Still Know What You Did Last Summer.

Hún fæddist 21. febrúar, árið 1979 í Wako, Texas, USA
Eina menntunin sem hún hefur fengið var í Laurel Springs High School
Fjölskylda hennar er: Danny (pabbinn); Pat (mamman); Todd (bróðir hennar)

Já eins og ég sagði áðan er hún fædd í Waco, Texas, og hún er uppalin nálægt Killeen.
Hewitt hafði leiklistina “í blóðinu” síðan hún var lítil. Þegar hún var níu ára (fann aðra heimild þar sem stóð sex ára - þið verðið bara að ákveða) varð hún meðlimur í “The Texas Show Team”
Og þegar hún var tíu ára, eftir að hafa flutt til L.A., byrjaði hún að birtast í auglýsingum (hversu margar stjörnur byrjuðu þannig?!) og þ.u.l.

Jennifer Love Hewitt hefur verið fræg lengi, en man þó ennþá eftir hvernig var að vera aðdáandi. Reyndar á hún sjálf stórt safn af eiginhandaáritunum og svarar mörgum bréfum sem hún fær frá aðdáendum! Geri aðrir betur!
Eins og Cindy Crawford, afmælisbarn gærdagsins, þá aðstoðar Jennifer mjög mikið við hjálparstörf og notar tíma sinn í ‘The Children’s Wish Foundation' og ‘Tuesday’s Child', sem eru stofnanir sem hjálpa veikum börnum.

Hewitt er líka viðurkennd söngkona og hennar fyrsta plata ‘Love Songs’ var gefin út árið 1992. Hún lauk við aðra plötu sína, ‘Let’s Go Bang' rétt áður en hún hóf að leika í þáttunum “Party of Five” og síðasta plata hennar, ‘Jennifer Love Hewitt’, var gefin út í september árið 1996.

Jennifer Love býr í Los Angeles með mömmu sinni og tveimur köttum, Haylie og Don Juan DeMarco (ekkert verið að skýra kettina sína einföldum nöfnum eins og Brandur!;))

Henni finnst leiðinlegt að taka til (hverjum finnst það ekki)..:)

Myndir sem hún hefur leikið í:

I Still Know What You Did Last Summer (1998)
Can't Hardly Wait (1998)
Telling You (1998)
I Know What You Did Last Summer (1997)
Trojan War (1997)
House Arrest (1996)
Sister Act 2: Back In The Habit (1993)
Little Miss Millions (1993)
Munchie (1992)

Sjónvarpsþættir:

The Senior Prom (1997)
Party Of Five (1995)
McKenna (1994)
The Byrds Of Paradise (1994)
Shaky Ground (1992)
Kids Incorporated (1989-91)

Kveðja
Halla