Steve Bing er einhver ríkur gaur sem var einu sinni með Elizabeth Hurley. Á meðan þau voru enn í sambandi varð hún ólétt, Bing hélt því hinsvegar fram að hann væri sjálfur ekki faðir barnsins og hætti því með henni. Nú er hann svo farinn að ásaka Chandler Bing, sem heitir samt í alvöru Matthew Perry, um að vera faðir barnsins. Þetta átti að hafa gerst þegar Matthew Perry og Elizabeth Hurley voru að taka upp myndina Serving Sara í fyrra, Hurley neitar þessu stöðugt og segir samband þeirra hafi einungis verið vinnutengt.


Þegar ég las fyrst um þetta ruglaðist ég svolítið, því þar sem “Bing” getur einfaldlega ekki verið algengt nafn vissi ég ekkert hvað var að gerast, hvort Steve Bing væri einhver persóna úr friends eða….ég veit ekki. Steve Bing er allavega til, ekki Chandler.

Matthew Perry er einnig þekktur fyrir eitt annað en að vera með fögrum konum, það er að nota fíkniefni en það þurfti einmitt að taka hlé á tökum Serving Sara til að hann gæti farið í meðferð.