Zac Efron Mér finnst hann frábær leikari. Þeir sem horfðu/horfa á Summerland muna kannski eftir honum sem Cameron. Hann fer alveg að kostum, að mínu mati, í söngvamyndinni High School Musical (HSM).

Hann heitir fullu nafni Zachary David Alexander Efron og er fæddur 18 október, 1987. Foreldrar hans heita David Efron og Starla Baskett.
Hann byrjaði að leika 11 ára og lék þá í fullt af leikritum.

Hann er frægstur fyrir að leika Troy Bolton í Disney Channel myndini High School Musical og fyrir að leika Cameron Bale í Summerland þáttunum.

High School Musical er söngvamynd og lögin sem Troy syngur, syngur Zac ekki einn. Hann fær hjálp frá söngvaranum Andrew Seely (Drew Seely). Röddunum þeirra er blandað saman og að það kemur bara vel út að mínu mati. Zac segir samt að atriðið sem hann syngur á svölunum, var eingöngu röddin hans.
Aðrir leikarar sem leika í High School Musical eru, Vannesa Hudgens, Corbin Bleu, Lucas Grabeel, Ashley Tisdale og Monique Coleman.
Flestir þessara leikara hafa líka verið gestaleikarar í þáttunum (þar á meðal Zac), The Suite Life of Zac and Cody.

Hann fékk mikla athygli fyrir leik sinn í HSM, eins og hinir leikararnir. En eftir að það kom upp að röddinni hans var blandað við rödd Drew Seely, voru sönghæfileikar hans dregnir í efa.
Hann fór með leikurunum að kynna myndina, en Drew fór í stað Zac's þegar leikarar HSM fóru í tónleikaferðalag um Bandaríkin og Kanada.

Lög úr myndinni:
-The Start of Something New (Troy & Gabriella)
-Get'cha head in the game (Troy)
-What I've Been Looking For (Sharpay & Ryan)
-Stick To The Status Quo (High School Musical Cast)
-When There Was Me and You (Gabriella)
- Bop To The Top (Sharpay & Ryan)
- Breaking Free (Troy & Gabriella)
- We're All In This Together (High School Musical Cast)

Orðrúmar hafa farið um að hann sé að slá sér upp með Vannessu og Ashley, sem leika hin aðal hlutverkin. Þau hafa verið kölluð Zacnessa og Zashley.
Held samt að ekkert af þessu sé staðfest.

Núna er hann að vinna við tökurnar á High School Musical 2.


Veit að þett er ekkert alveg fullkomið, en langaði bara að gera grein um þennan leikara.
Afsakið allar villur.
“One day when your whole life flashes before your eyes, make sure it's worth watching … before it's too late.” - Anonymous