Leikkonurnar úr Desperate Housewives Ég ætla að skrifa um leikkonurnar úr þáttunum vinsælu, Desperate Housewives.
Eva Longoria//Gabrielle Solis
Eva Jacqueline Longoria fæddist 15.mars í Corpus Christi, Texas árið 1975. Eva er yngst fjögurra systra (Elizabeth,Emily&Esmeralda) og ólst upp í búi nálægt Corpus Christi. Hún fór í A&M-Kingsville skólann í Texas og fékk þar BS-próf(Bachelor of Science:fyrsta háskólagráða í raunvísindagrein)í hreyfingarfræði. Þegar hún útskrifaðist úr háskóla fór hún í hæfileika-keppni sem kom með hana til Los Angeles og fékk umboðsmann. Eftir nokkur hlutverk í þáttum eins og Bold and the Beautiful, General Hospital og Beverly Hills 90210, fór Eva í prufu fyrir Isabellu í vinsælu þáttunum The Young and the Restless. Hún varð þó heimsfræg fyrir hlutverk sitt í Desperate Houswives eins og flestir vita. Eva á samning við L'Oreal og er talin vera ein af fallegustu konum heims.
Nokkrir punktar um Evu Longoriu-
-Var Ungfrú Corpus Christi árið 1998
-Er ættuð frá Mexíkó
-Var dansari með hljómsveitinni The Pussycat Dolls
-Talar reiprennandi Spænsku
-Opnar veitingastað sem heitir Por Fin (sem þýðir At Last), einhvern tímann í október eða nóvember á þessu ári.
Teri Hatcher//Susan Mayer
Teri Lynn Hatcher fæddist 8.desember í Sunnyvale, Californiu árið 1964. Hún er einbirni og eyddi æskuárunum í að dansa og veiða með föður sínum. Hún fór í Fremont High School og var fyrirliði dans liðs sem var mjög líkt klappstýrum, undantekningin var að þær voru í stórum kjólum að dansa. Teri lærði leik í American Conservatory Theater í San Fransisco á meðan hún tók áfanga í verkfræði og stærðfræði. Hún fór til Hollywood til að hughreysta vinkonu en fór í leiðinni í prufu fyrir hina syngjandi og dansandi hafmeyju í þáttunum The Love Boat, og fékk hlutverkið. Teri lék svo í MacGyver og Lois & Clark: The New Adventures of Superman. Árið 1997 gekk hún í kabarett og var lokasýningin hennar 1999. Hún tók það rólega í nokkur ár en lék svo í Desperate Houswives og vann Golden Globe fyrir hlutverk sitt og SAG, þá var fyrsta serían ekki einu sinni búin.
Nokkrir punktar um Teri Hatcher-
-Elskar að spila gólf
-Var klappstýra hjá San Fransisco 49ers
-Er af írskum, ítölskum og indjána ættum
-Hefur verið nefnd ein af fallegustu konum í heimi hjá mörgum tímaritum
Felicity Huffman//Lynette Scavo
Felicity Huffman fæddist 9.desember í Bedford, New York árið 1962. Hún ólst þó upp í Colorado ásamt einum bróður og sjö eldri systrum, en þegar hún fór aftur austur til að fara í NYU, gekk hún í Atlantic Theater Company. Núverandi eiginmaður hennar William H. Macy og David Mamet réðu henni að fara í það. Mamet bauð henni svo hlutverk í Things Change árið 1988 og var varaskeifa Madonnu í Broadway leikriti Mamets, Speed-the-Plow sama ár. Næstu tíu árin var hún varaskeifa í leikritum (aðallega hjá Atlantic Theater Company) og í þáttum. Hún lék t.d. gestahlutverk í þáttum eins og Law & Order og X-files. Felicity og maðurinn hennar komu fram í Magnolia, en eftir það hlutverk lék hún í mörgum sjónvarpsmyndum. Hún fékk gestahlutverk í Fraiser og eldri systur Kate Hudson í Raising Helen, en eftir það fékk hún hlutverkið í Desperate Houswives.
Nokkrir punkar um Felicity Huffman-
-Elskar Tinu Turner
-Var nefnd Flicka en það varð að breyta því, því það er ekki kristið nafn
-Var rekin úr þáttunum Thunder Alley
-Fór í prufu fyrir Star Trek
-Var ein af gestum Marciu Cross í brúðkaupi hennar
Marcia Cross//Bree Van De Kamp
Marcia Anne Cross fæddist 25.mars í Marlborough, Massachusetts árið 1962. Síðan hún var lítil hefur hana alltaf langað til að verða leikkona, og lét rætast úr því. Hún útskrifaðist frá Julliard School í New York og byrjaði ferill hennar árið 1984. Marcia lék þá í sápunni The Edge of Night, og sama ár lék hún í sjónvarpsmyndinni Brass. Árið eftir lék hún aðallega í sjónvarpsmyndum, t.d. The Last Days of Frank and Jesse James með leikurum eins og June Carter og Johnny Cash, Willie Nelson og Kris Kristofferson. Næstu ár var hún í sápuóperum, sjónvarpsmyndum og kvikmyndinni Bad Influence. En allir muna eftir henni úr Melrose Place árið 1992, en árið eftir dó unnustinn hennar. Hún lét það samt ekki draga sig niður og lék í tveim myndum á meðan hún var líka í Melrose, en hún fór úr þáttunum árið 1997 til að fá meistaragráðu í Sálfræði. Hún fór í áheyrnarprufur fyrir Desperate Houswives árið 2004 en þá var hún búin að halda áfram að leika venjulega, í litlum myndum og sjónvarpsþáttum.
Nokkrir punkar um Marciu Cross-
-Á tvær systur
-Hefur oft og mörgum sinnum verið nefnd ein af fallegustu konum heims, ef ekki sú fallegasta
-Marcia og Brenda Strong sem leikur með henni í DH, eiga margt sameiginlegt. Eiga sama afmælisdag, hafa báðar leikið í Everwood og Ally McBeal.
-Marcia og Teri léku báðar kærustu Seinfeild í samnefndum þáttum.
Nicollette Sheridan //Edie Britt
Nicollette Sheridan fæddist 21.nóvember í Worthing, West Sussex, Englandi árið 1963. Hún er dóttir bresku leikkonunnar Sally Adams en faðir hennar er óþekktur og á einn hálf bróður, Nick Savalas. Hún hefur aðallega leikið í dramamyndum eða sápuóperum, þreytti frumraun sína í Paper Dolls og vann Soap Opera Digest verðlaunin fyrir Knots Landing. Nicollette fór í áheyrnaprufu fyrir Will & Grace fyrir Grace en eins og allir vita fékk Debra Messing hlutverkið. Hún hefur samt leikið í nokkrum þekktum myndum, eins og Spy Hard með Leslie Neielsen og Beverly Hills Ninja.
Nokkrir punktar um Nicollette Sheridan-
-Er af grískum uppruna
-Talar grísku reiprennandi
-Fór fyrst í áheyrnarprufu fyrir Bree Van De Kamp
-Er grænmetisæta og trúir því að allt líf eigi skilið að lifa
-Hefur kunnað að ríða út síðan hún var 3.ára
Jæja þar hafiði það ;) Uppáhálds persónan mín er Gabrielle eða Susan! Hver er ykkar uppáhálds? Ég vona að þessi grein sé ágæt, var enga smá stund að gera hana :/
-Heimildir; www.imdb.com og www.google.com