Mjónur! Þetta eru smá vangaveltur um holdafar leikkvenna/söngkvenna.. bara Frægra kvenna yfir höfuð. Þið spyrjið ykkur kannski afhverju ekki karlanna? Það er nu bara vegna þess að þeir eru allir frekar massaðir og þannig!

Ég hef fylgst með ýmsum þekktum konum t.d. Jessicu Simpson, Lindsay Lohan, Nicole Richie& Paris Hilton. Þær voru svona til að byrja með, með hold, sem er sjaldgæft hjá frægum konum, og svo byrjuðu þær að léttast og léttast og að lokum sá maður bara skinn og bein! Þetta er bara hryllingur! Ég meina mer finnst þær ótrúlega mjóar en samt bætir myndavelin alltaf við, svo hvernig eru þær augnlitis til augnlitis?!
Allt í lagi kannski eru sumar eins og t.d. Paris Hilton sem eru svona nátturulega maður veit aldrei. Besta vinkona mín er til dæmis mjög grönn að eðlisfari og það er bara mjög flott! svo eru náttúrulega til fallega massaðar frægar konur t.d. Angelina Joile, Fergie í BEP & fleiri
En hvers vegna er maður annars að velta ser upp úr þessu haha.. góða nótt:*