Eins og kannski margir þá var ég eiginlega búinn að mynda mér þá skoðun að Jackson væri sekur um þá glæpi sem hann var sakaður um gegn ungum drengjum sem gistu hjá honum á búgarði hans - Neverland.

Hinsvegar var ég að horfa á Sky news og þar var farið yfir vitnisburð sumra vitna sem lögmenn Jackson kölluðu fyrir í síðustu viku, kom þar ýmislegt í ljós um bræðurna Gavin og Star sem eru uppistaðan í þessum málaferlum gegn honum, ég ætla að koma með nokkra punkta sem komu þar fram.

- Kokkur Jackson sagði meðal annars að Gavin hefði eitt sinn komið til hans og beðið hann að búa til fyrir sig mjólkurhristing sem hann og gerði, þegar hann var búinn að því þá benti drengurinn á líkkjörsflösku uppí hillu og bað hann að hella úr henni í drykkinn, þegar kokkurinn neitaði þá hótaði hann honum því að klaga hann í Jackson og að hann yrði þá rekinn.

- Sami kokkur lenti seinna í því að Gavin tók beittan eldhúshníf og bar hann að hálsi kokksins þegar hann var að fara vera fram mat, það voru mörg vitni af þessum atburði sem staðfestu það.

- Önnur vitni staðfestu svo líka að þessi sami drengur hefði iðulega komið fram við þennan kokk eins og hann var aumingi og ræfill og notaði orðin “fuck” og ræfill o.s.frv. þegar hann skipaði honum að sinna honum.

- Barnapía sem vann á búgarðinum kom líka og sagði frá því hvernig hún hefði komið að drengjunum þar sem þeir voru með sitthvora vínflöskuna sem þeir voru að drekka, þeir báðu hana að segja engum frá því sem hún og gerði, hún sá þá ekki aftur með vín.

- 12 ára frændi Jackson sagði frá einu kvöldi þar sem hann hafði gist með bræðrunum í gestaherbergi, þá kveiktu þeir á sjónvarpinu og settu á stöð þar sem voru naktar konur að gera “nasty stuff” og fóru svo að gera eitthvað sem getur varla verið annað en að fróa sér og hvöttu hann til að vera með, drengurinn sagði þetta víst ekki berum orðum og fór mikið hjá sér þegar hann sagði frá þessu og ljóst var að þetta var samt það sem gerðist.
Drengurinn hljóp inní herbergi til Jacskon og svaf þar um nóttina og vildi aldrei gista með bræðrunum aftur.

- Það komu svo einhver vitni fram með svipaðar sögur af bræðrunum og þar sem oft voru fleiri vitni sem staðfestu það þá efast ég um að þessie vitnisburðir séu lygi, þetta virðist hafa verið hegðun sem var algeng hjá þeim.

Larry King bar síðan vitni og sagði frá því þegar hann talaði við upphaflegan lögfræðing fjölskyldunnar sem fékk bætur fyrir 10 árum síðan, sá hafði hætt vegna þess að honum fannst móðir drengsins vera “wacko” sem væri einungis að sækjast eftir peningum Jackson, hann hefði ekki viljað taka þátt í slíku.

Eftir að ég kynnti mér þetta svo aðeins þá skilst mér að það sé fullt af fólki búið að bera vitni um það að það hafi deilt rúmi með Jackson þegar það var yngra og það sé fráleitt að eitthvað ósiðlegt hafi átt sér stað, þar á meðal barnastjarnan M. Culkin úr Home Alone..

Hann sagði meðal annar að Jackson hafi skilið hann vegna þess að eins og hann hafði barnæskan verið tekin af honum og þessvegna vildi hann eyða tíma með börnum til að reyna bæta sér það upp.


Þetta er að ég held önnur vikan af vörn Jackson og miðað við það sem ég heyrði og hvaðan ég heyrði það (Sky news) þá held ég að ég ætli að skipta um skoðun og trúa á sakleysi Jackson.