Brad Pitt og Jennifer Aniston - skilnaður Hollywood-stjörnurnar Brad Pitt og Jennifer Aniston ætla að skilja. Þau hafa verið gift í fjögur og hálft ár en um hríð hafa gengið sögur af brestum í hjónabandinu. Um áramótin greindu bandarískir fjölmiðlar frá því að Aniston gengi ekki lengur með giftingarhringinn sem jók enn á sögusagnirnar. Í yfirlýsingu segjast stjörnurnar skilja í mesta bróðerni og ætla sér að vera vinir áfram. Í fréttaskeytum er því haldið fram að Pitt, sem er ríflega fertugur, vilji ólmur fjölga mannkyninu en Aniston, sem er þrjátíu og fimm ára, sé ekki spennt fyrir því.


Þrjár líklegar ástæður hafa verið gefnar fyrir sambandsslitum Hollywood-hjónanna Brad Pitt og Jennifer Aniston. Höfðu þau verið gift í fjögur og hálft ár þegar fjölmiðlafulltrúi Pitt tilkynnti á föstudag að hjónabandið væri á enda.

Flestir telja að þau hafi hætt saman vegna þess að Aniston var ekki tilbúin að stofna fjölskyldu með Pitt. Hinn 41 árs gamli Pitt er sagður ólmur í að verða faðir á meðan Aniston, sem er 34 ára, vill frekar einbeita sér að kvikmyndaferlinum.

Önnur kenning er sú að Pitt og mótleikkona hans í myndinni Mr. & Mrs. Smith, Angelina Jolie, hafi eytt miklum tíma í símanum og átt þar heitar stundir saman. Talað er um að Aniston hafi eitt sinn heyrt til þeirra og orðið ævareið í kjölfarið.

Þriðja ástæðan sem hefur verið nefnd er sú að Pitt hefur mjög gaman af því að leika við Maddox, son Jolie. Í breska slúðurblaðinu Daily Star Sunday kemur fram að Aniston hafi orðið brjáluð þegar Pitt benti henni á að Angelina, sem er sex árum yngri, hefði ekki átt í neinum erfiðleikum með að ala upp soninn á sama tíma og hún sinnti gæfuríkum kvikmyndaferlinum.

Í tilkynningu frá Pitt og Aniston kemur fram að þau séu ennþá góðir vinir. “Við viljum taka það fram að skilnaður okkar er ekki sprottinn út frá því sem hefur komið fram í fjölmiðlum. Mikil umhugsun lá að baki þessari ákvörðun.”


Leikarinn Brad Pitt gaf Jennifer Aniston, eiginkonu sinni til fjögurra ára, afarkosti um að þau myndu reyna að eignast barn á þessu ári.

Pitt var svo æstur í að verða pabbi að hann gat ekki beðið lengur, enda orðinn 41 árs gamall. Aniston, sem er 35 ára, vildi hins vegar ekki eignast barn strax heldur einbeita sér að kvikmyndaferlinum. Talið er að Angelina Jolie hafi aukið á löngun Pitt í að eignast barn því hún mætti með son sinn Maddox á hverjum degi þegar hún lék með Pitt í Mr and Mrs Jones. Eyddi Pitt öllum sínum frítíma í að leika við strákinn.