River Phoenix Mig langar að skrifa grein um uppáhaldsleikarann minn, River Phoenix.
———————

River Jude Phoenix fæddist 23. ágúst 1970 í Madras, Oregon USA.
Foreldrar hans heita Arlyn Heart Phoenix og John Phoenix en þau er nú skilin. Hann átti líka 4 systkini sem heita Rain Phoenix f. 31. mars 1973, Joaquin Rafael Leaf Phoenix f. 28. október 1974, Libertad Mariposa Phoenix f. 5. júlí 1976 og Summer Joy Affleck f. 10. desember 1978. Þegar River var að alast upp gengu Arlyn og John í sértrúnaðarsöfnuð sem hét Börn Guðs. Með þeim fluttu þau oft og áttu meðal annars heima í Texas þegar Rain fæddist, Púertó Ríkó þegar Joaquin fæddist og Venesúela þegar Libertad fæddist. 1977 gengu þau úr söfnuðinum og fluttu til Kaliforníu.
Þegar River og Rain voru ung þá voru þau að syngja og spila á götum hinna mörgu borga í Suður-Ameríku til að safna peningum fyrir fjölskylduna sem var bláfátæk. Eftir að þau fluttu til Kaliforníu og héldu áfram þeirri iðju þangað til að fjölskyldan fékk bréf frá Paramount-kvikmyndaverinu sem vildi fá þau til að syngja í barnaþættinum “Real Kids”. Eftir það sungu þau líka í öðrum barnaþætti sem hét “Fantasy”.
Árið 1983 fékk River hlutverk í gamanþættinum Seven Brides for Seven Brothers.
Hann lék í mörgum myndum á ævinni en árið 1985 kynntist hann Mörthu Plimpton sem átti eftir að verða kærasta hans næstu 4 ár.
River var grænmetisæta og dýraverndunarsinni. Það var sagt að það eina sem honum hafi þótt vænna um en dýrin væri fjölskylda hans.
River átti mjög marga vini sem voru líka í bransanum eins og Dan Aykroyd, Harrison Ford, Richard Harris, Sidney Poitier, Johnny Depp, Flea, Martha Plimpton og Charisma Phoenix en besti vinur hans var Keanu Reeves. Þeir kynntust þegar Martha lék á móti honum í myndinni “Parenthood” og sagði hann að honum hafi fyrstu líkað mjög illa við hann vegna þess að hann var alltaf að kyssa hana í myndinni. Þeir léku síðan saman í myndunum “I Love You to Death” og “My Own Private Idaho” en þar byrjaði River að fikta með fíkniefni. 1984 kynntist hann Charismu Carpenter, f. 1. apríl 1971, þegar þau léku saman í myndinni “Explorers”. Þau áttu síðan eftir að leika í myndinni “Running on Empty” þar sem River var tilnefndur til Óskarsverðlauna 1989 en Kevin Kline vann. Þau byrjuðu saman 1989, giftust síðan 1992 og eignuðust sitt fyrsta barn 28. febrúar 1993. River var aftur tilnefndur til Óskarsverðlauna 1993 fyrir að leika samkynhneigðan mann sem selur sig en verður svo ástfanginn af manni sem leikinn er af Keanu Reeves. Hann fékk Óskarinn þá. River hafði byrjað í dópinu 1991 þegar hann var að kynna sér hlutverkið fyrir “My Own Private Idaho” en þá varði hann miklum tíma með mönnum sem seldu sig fyrir heróíni og öðrum efnum og ánetjaðist hann því. Hann reyndi að hætta eftir að hann eignaðist son sem fékk nafnið River Jude Phoenix II og var hann hreinn í nærri því 8 mánuði. Að kvöldi 30. október 1993 fór hann í klúbb sem hét The Viper Room og Johnny Depp átti hlut í. Hann fór þangað með Joaquin, Rain og Charismu. Á klósettinu hitti hann gamlan vin sem var eiturlyfjasali og fékk River sér smá af efni sem hann sagði að væri það besta. Hann byrjaði að hristast og þegar hann fór fram bað hann Joaquin og Charismu að hjálpa sér út. Þau gerðu það og Rain fylgdi á eftir. Þegar þau voru komin út þá féll River niður á gangatéttina og byrjaði að fá flog. Rain lagðist á bróður sinn til þess að stoppa flogin. Joaquin hringdi í Neyðarlínuna og var samtalinu sjónvarpað og útvarpað um allan heim mörgum vikum eftir atburðinn. River Phoenix dó á Sedars-Cinai Medical Center í Hollywood, Kaliforníu 31. október 1993 kl. 1:51 am. Hann skildi eftir sig ástríka fjölskyldy ásamt eiginkonu og barni. Hans verður ávallt minnst.

Hlutverk Rivers:

Seven Brides for Seven Brothers - Guthrie McFadden (1982-1983)

Celebrity - Jeffie Crawford (1984)

Backwards:The Riddle of Dyslexia - Brian Ellsworth (1984)

Explorers - Wolfgang Muller (1985)

Robert Kennedy and His Times - Robert Kennedy Jr. (1985)

Surviving: A Family Crisis - Philip Brogan (1985)

Family Ties - Eugene Forbes (1985)

Circle of Violence: A Family Drama - Chris Benfield (1986)

Stand by Me - Chris Chambers (1986)

The Mosquito Coast - Charlie Fox (1986)

Little Nikita - Jeff Grant (1988)

Running on Empty - Danny Pope (1988)

A Night in the Life of Jimmy Reardon - Jimmy Reardon (1988)

Indiana Jones and the Last Cruiside - Ungur Indiana Jones (1989)

Dogfight - Eddie Birdlace (1990)

I Love You to Death - Devo Nod (1990)

Sneakers - Carl Arbogast (1992)

My Own Private Idaho - Mike Waters (1992)

The Thing Called Love - James Wright (1993)

Silent Tounge - Talbot Roe(1993)

Áður en River dó þá var hann búin að skrifa undir samning um að leika í 4 myndum. Þær voru “A River Runs Through It”. Hlutverkið sem hann átti að leika fór til Brad Pitts. “Intreview With the Vampire”. Hlutverkið fór til Christian Slaters. “Total Eclipse”. Hlutverkið fór til Leonardo DiCaprios. “Dark Blood”. Myndin var langt komin þegar River dó en framleiðslunni var hætt eftir dauða hans. Þess má geta að framleiðsla og tökur á “My Own Private Idaho” tók um 2 1/2 ár.