Paris Hilton Paris Hilton er þekkt fyrir að vera algjört partýdýr, módel og leikkona en þrátt fyrir það er hún elsta barn Hilton fjölskyldunnar og er þar með erfingi Hilton hótelanna í Bandaríkjunum en þau eru talin vera ein flottustu hótelin þar á slóðum.
Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul er hún orðin fræg út um allan heim og komin í öll slúðurblöð. Fjölmiðlarnir elta hana á röndum enda algjört eftirlæti ljósmyndara sem og slúðurblaðamanna.
Paris Hilton eða “stjarnan” eins og hún er kölluð fæddist 17. febrúar, 1981. Afi hennar og stofnandi Hilton hótelanna, Conrad Hilton var fyrsti eiginmaður leikkonunnar Elizabeth Taylor en Paris erfir 300 milljónir dala eftir hann.
Paris og Nicky (yngri systir Paris) ólust upp á Manhattan, í “höll” fjölskyldunnar í New York en þau áttu líka húsnæði í Beverly Hills og á fleiri stöðum. Paris virtist ekkert þrá þetta hlutverk hennar í lífinu og jafnvel eftir menntaskólann höfðaði námið ekki til hennar þannig að hún ákvað að gera það sem henni langaði - að verða FRÆG.

Paris fór að reyna fyrir sér sem módel en á sama tíma varð hún miðpunktur athyglinnar út af sambandi sínu við leikarann Leonardo DiCaprio. Eftir samband sitt við DiCaprio “deitaði” hún einnig boxarann Oscar de la Hoya og Nick Carter svo eitthvað sé nefnt. Paris og Nichole, systir hennar fóru einnig að verða “alræmdar” á næturlífinu og hafa síðan orðið þekktari og þekktari með hverjum deginum.

Paris Hilton hefur verið að leika smáhlutverk í ýmsum myndum t.d. Zoolander og núna er verið að sýna þátt á Skjáeinum sem nefnist “The Simple Life” en þar fara þær Paris Hilton og besta vinkona hennar Nichole Richie með aðalhlutverkin. “The Simple Life” er raunveruleikaþáttur þar sem þær Paris og Nichole fara á bóndabæ í 30 daga og eiga að vinna fyrir sér. Þær hafa alltaf fengið það sem þær vilja og hafa aldrei þurft að vinna fyrir sér þannig að þetta er eitthvað alveg nýtt fyrir þeim. Þessi þáttur er búinn að vera þvílíkt vinsæll í Bandaríkjunum enda engin furðu þar se Paris Hilton fer með aðalhlutverkin ;) En hérna eru smá upplýsingar um Paris í viðbót..

Nafn: Paris Hilton
Fæðingardagur: 17. febrúar, 1981
Fæðingarstaður: New York, USA
“Nick name”: Star
Gæludýr: Prince, Dolce, Sebastian og Tinkerbell
Uppáhalds föt: Dolce & Gabbana
Foreldrar: Rick & Kathy Hilton.
Systkini: Nicky (20), Barron (16) og Conrad (12).
Stílisti: Rebecca Weinburg.
Uppáhalds sport: Golf
Uppáhalds “skyndi” matur: Taco Bell & McDonald's.
Uppáhalds veitingastaður: Cipriani.

Takk fyrir mig ;)
Andrea