Janet Jackson & Justin Timberlake Eins og örugglega flestir vita voru Janet Jackson og Justin Timberlake að skemmta í hálfleik á Super-Bowl leiknum í Bandaríkjunum um daginn þegar Justin reif hluta af kjól Jackson þannig að annað brjóstið eiginlega bara “hoppaði” út. 89 milljónir áhorfanda fylgdust með atriðinu og var sumt fólk ekki alveg sátt við þessa hegðun stjarnanna.

Janet Jackson er búin að fullyrða að þetta svokallaða
“brjóstahopp” hafi verið planað eftir lokaæfinguna án vitundar MTV
en að þetta hafi ekki átt að ganga svona langt. Poppstjörnurnar höfðu víst ákveðið að Justin ætti að kippa í brjóstið á Jackson þannig að rauðbleikur brjóstahaldari hennar væri sýnilegur. Justin hefur greinilega orðið full ákafur og reif kannski aðeins of mikið utan af Jackson. Þetta er víst ekki í fyrsta skipti sem söngkonan sýnir kynþokka sinn til að fá athygli en Justin sem er 23 ára gamall og Janet sem er á 38 ári hafa bæði beðið formlega afsökunar á athæfinu í hálfleiknum.

Hinn 23 ára gamli söngvari, Justin Timberlake er á föstu með leikkonunni Cameron Diaz þó að nýjasta slúðrið sé það að hann hafi verið að halda frá hjá henni um daginn með einhverju bresku “glamour” módeli. En auðvitað veit ég ekki hvort það sé eitthvað til í því.
Janet Jackson er svo að fara að gefa út nýja plötu sem nefnist Damita Jo, due out. Nýjasta lag hennar, Just a Little While
fór í útvarpið í seinustu viku útí Bandaríkjunum og náði víst talsverðum vinsældum svo maður bíður bara spenntur eftir því að það verði spilað á klakanum.

Verði ykkur að góðu og endilega komið með comment ;)