Antonio Banderas......... Hér er smá um leikarann Antonio Banderas…..

Fullt nafn: José Antonio Domínguez Banderas
Fæðingardagur: 10. október 1960
Fæðingarstaður: Málaga á Spáni
Systkini: Einn yngri bróðir, Francico
Hæð: 5'9" eða 1,75
Þyngd: 79,5 kg
Ferilsbyrjun: Pestañas Postizas
Heimilisfang: C/O Creative
Artists Agency
9830 Wilshire Blvd
Beverly Hills
CA 90212

Móðir Antonio Banderas var kennari en faðir hans var lögreglumaður.
Þegar Antonio var lítill þá dreymdi hann alltaf um að verða atvinnumaður í fótbolta en sá draumur eyðilagðist alveg þegar hann fótbraut sig þegar hann var 14 ára. Þá byrjaði hann að æfa sig að leika.

Antonio er hámenntaður leikari en hann er brautskráður úr
School of Dramatic Art í Málaga á Spáni.

Antonio hefur verið giftur 2 konum. Fyrst giftist hann Ana Leza en þau voru gift í 9 ár, frá 1988-1996. Síðan giftist hann Melanie Griffith árið 1996 og þau eru ennþá saman. Antonio og Melanie eiga eitt barn. Það er stelpa og hún heitir Stella Banderas. Hún er fædd 24 september 1996. Fullu nafni heitir hún Stella del Carmen Banderas Griffith.