Hérna er eitthvað nýtt um Orlando Bloom. Svona fyrir þessar stelpur sem elska hann. ÉG þýddi þetta úr dönsku svo að þetta er aðeins asnalegt. ÞETTA ER EKKI COPY/PASTE þettar ÞÝTT
Hvað hatar Orlando Bloom og hvað elskar hann?

Orlando elskar…

* Mömmu sína og pabba
-Pabbi minn er látinn, en hann var á móti aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku og var fangelsaður fyrir það. Ég er mjög stoltur af honum. Mamma mín var vön að fá mig og systur mína í keppni um hvort læsi best úr biblíunni- það var þannig sem ég fékk áhuga á leiklist…

* Stórusystur
-Þegar við vorum lítil vorum við alltaf að rífast og slást, en nú þegar við erum orðin eldri urðum við bestu vinir. Það var hún sem kenndi mér sitt hvað um föt…

* Kærustur
- Ég er mjög rómantískur. Þegar ég er virkilega ástfanginn þá geri ég margt undarlegt fyrir hana. Ég held að ég sé líka að ég er góður kærasti…

* Vinir
-Ég elska að gera eitthva skemmtilegt saman í stórum vinahópi. Ég held að ég sé dáldið stjórnsamur og sá sem stjórnar hópnum dáldið. Ég hef alltaf verið svona foringi yfit hópum en sá sem fylgir honum, held ég…

* Húðflúr
-Ég hef fengið húðflúrið með álfatölunni ‘9’ á hendina mína, þetta húðflúr fengu allir sem voru í ‘Hringadróttinssögu’, og svo er ég með litla sól undir naflanum. Maður verður að vera ákveðinn ef maður ætlar að fá sér húðflúr, þau er á manni allt lífið…

* ‘Stand by me’
- er besta mynd í heimi. Það var þannig sem ég ákvað að verða leikari.

* Linda Evans
-Hún var fyrsta ‘ástin’ mín. Ég sá alltaf ‘Dollars’ þegar ég var lítill. Frænka mín vann þá sem framleiðandi í New York og útvegaði mynd af henni með eiginhandaráritun. Það var svo frábært…

* Skemmtilegheit
-Ég gæti alveg ímyndað mér að gera gamanleik einhverntíman. Ég get reyndar verið mjög fyndinn, þegar fólk býst síst við því…

* Tónlist
-Ég elska tónlist, sérstaklega írska tónlist, en fyrstu tónleikarnir sem ég fór á var mað Jamiroquai í Canterbury, þar sem ég er fæddur. Og Michell Jacksons ‘Thriller’ var fyrsta platan sem ég keypti….

Orlando hatar…

* Deilur
-Ég hef reynt að komast undan því að slást við vini mína sem vilja slást við mig og síðan að þykjast vera flottur í þokkabót…

*Forvitni
-Akkúrat núna er fullt af fólk sem vill vita hvort ég sé með kærustu. Mér finnst það í rauninni dáldið spooky…

* Gremju
-Ég hata þegar verið er að nota tíma til að gera ekki neitt. sumir vinir eru fyrir lífið og aðrir hverfa smámsaman. Og svoi getur þetta kannski gerts bæði eitthvað gott og eitthvað vont. Ég horfi mjög hreint á þetta: Allt gerist út af einhverju og þú verður bara að treysta þér…

*Þegar vantar Rómantík
- Mér finnst óþolandi þegar fólk hugsar ekkert um rómantíkina. Stundum er það eins og það sé eitthvað við það rómantíska sé að hverfa og mér þykir það mjög leitt…

* Að svekkja fólk
-Sérstaklega stelpur. Þær halda að ég sé einhver ljóshærð goð með hafbláu augu og það er dálítið ergilegt að vera að svekkja þær. Hár Legolasar er hárkolla og bláu augun linsur. Ég líkist honum ekki nema með hárkolluna, linsurnar og heilt tonn af farða á mér…

*Léilegir ávanar
-Ég er að reyna að laga til í ávönum mínum. Ég er t.d. orðinn grænmetisæta. Ég er hættur að reykja en ég naga því miður ennþá neglurnar…

*Peninga
-Ég hata auðvitað ekki peninga þannig, en ég þoli þá ekki þegar peningar stjórna vali á bíómyndum sem maður er að leika í. í alvöru, bara ef ég gæti fengið að kyssa stelpu, þá mundi ég alveg vilja gera það frítt…

*Skólann
-Ég var miklu meira skapandi en lærandi. Í einkunnarbókunum stóð ‘Orlando er góður strákur en hann leggur meira í það að kíkja út um gluggan eða leika við hamstrana í stað þess að læra’…

*Hákarla
-Síðan ég sá ‘Jaws’ þegar ég var lítill hef ég alltaf haft það á tilfinningunni að ég verði étinn af hákarli. Þegar ég var á Nýja Sjálandi á brimbretti sá ég eitthvað í sjónum og var alveg að fara á taugum en svo kom i ljós að þetta var bara selur…

*Að vera annar en maður er
-Í Hringadróttinssögu voru allir litlu leikararnir látnir vera Hobbitar, þeir hávöxnu og flott urðu af álfum. Hversu stoltur getur maður verið af því?…

Vi unge/2003
Jæja, hér hafið þið þetta um Orlando Bloom. Ekki fara að gagnrýna þetta sérstaklega mikið. Ég þýddi þetta úr dönsku tímariti og ég fann ekki út hvað fortrydeler þýddi fyrr en í síðustu orðabókinn og það þýðir gremja nema að einhver sem hefur búið í því landi lengur en ég segi að það sé eitthvað annað…