Amanda Bynes Nafn: Amanda Laura Bynes
Fæðingardagur: 3 apríl 1986
Fæðingarstaður: Thousand Oaks, California
Uppáhaldstónlist: No doubt
Áhugamál: Versla og synda

Amanda byrjaði ferilinn sinn í leikhúsum í The Laugh factory (eða hláturs verksmiðjunni) þar sem hún var uppgötvuð þegar hún var 11 ára. Fyrsti sjónvarpsþátturinn hennar var Nickelodeon þátturinn All that sem var eiginlega yngri útgáfa af Saturday night live og í All that lék hún margar vinsælar persónur eins og Ask Ashley, Captain Tantrum og Nicole úr Whatever girls….. og auðvitað hef ég enga hugmynd hverjar þessar persónur eru :). Á meðan hún var í All that vann hún Kids choice verðlaunin fyrir bestu leikonu hvert ár. Vinsældir hennar leiddu til þess að framleiðendur bjuggu til annan þátt bara fyrir hana, sem var að lokum kallaður The Amanda show. The Amanda show var líka svona live comedy þáttur eins og All that,nema í þessum lék Amanda allar persónurnar.

Amanda gerði líka mikið af góðgerðarverkum og hitti aðdáendur sína og varð ein af þeim fáu leikkonum sem áritar hverja einustu eiginhandaráritun (kanski var það vegna þess á þeim tímum átti hún ekki eins marga aðdáendur og margar stórstjörnur). Hún lék líka í sjónvarpsþáttum eins og Nightmare room og kom fram sem gestur í All that.

Árið 2000 lék hún með Frankie Munez í myndinni Big fat liar. Big fat liar var fyrsta stóra hlutverk hennar í mynd. Eftir þrjár þáttaraðir af The Amanda show var henni boðið hlutverk í þáttum á móti Jennie Garth sem eiga að heita What I Like About You. Nýjasta mynd hennar What a girl wants er sýnd í bíóhúsum núna. Þetta er aðeins byrjunin á ferli hennar.

Amanda ekur Honda Accord bíl og býr með fjölskyldunni sinni í Ventura County, California. Þótt að Amöndu lagar til þess einhvertíman að læra viðskipti í UCLA hefur hún engin plön að hætta í skemmtibransanum.

Amanda hefur líka talað inn á margar teiknimyndir eins og
Rugrats.

Þættir sem hún hefur leikið í
-All that
-The Amanda show
-What I like about you

Myndir sem hún hefur leikið í
-Big fat liar
-What a girl wants



“So many people comment that I'm much more mature than average. In this business, you can get taken advantage of if you're not aware and you're not tough.”
-Amanda Bynes