Nicole Kidman Fullt nafn: Nicole Mary Kidman
Fæðingarstaður: Honolulu, Hawaii
Fæðingardagur: 20. júní 1967
Menntun: St. Martin's Youth Theatre, Melbourne, Australia
Sambönd: Tom Cruise (gift 1990; skildu 2001)
Börn: Isabella Jane (1993); Connor Antony ( 1995) –bæði ættleidd



Nicole var mikið sviðsljósinu eftir að Tom Cruise yfirgaf hana og hún viðurkenndi að hafa verið þunglynd á meðan hún vann að kvikmyndinni “The hours”.


Staðreyndir um Nic eins og hún er kölluð

Hún er örfhent

Hún er hrædd vð fiðrildi

Uppáhalds liturinn hennar er blár

Hún reykir (svokallaður party smoker)

Hún er með ofnæmi fyrir býflugum


Nicole er með fallega söngrödd og söng og danshæfileikar hennar komu fram í myndinni Moulin Rouge.Hún hefur líka sungið með Robbie Willams í laginu “Something stupid” en hún lék einnig í myndbandinu með honum.

Nicole var tilnefnd til Óskarsverðlaunana í fyrra fyrir frammistöðu sína í Moulin Rouge en hún tapaði honum fyrir Halle Berry.