Hann heitir Ryan Seacrest og er kynnir í American Idol. Hann fæddist 24 desember árið 1974 í Atlanda þar sem hann ólst upp. Hann á núna heima í Los Angeles í Kaliforníu. Hamm er 5´9” fet hár (en ég hef ekki hugmynd hvað það eru margir cm) og hann er á lausu. Áhugamál hans eru að æfa og elda. Til að halda sér eins fallegum og hann er fer hann í sólböð, notar flísatöng, fer í andlitsnyrtingu og fer í nudd. Hans stærstu áhrifavaldar eru foreldrar hans, David Letterman og Merv Griffin og fólk sem hann vildi helst taka viðtal við er Larry Wilcox og Dustin Hoffman. Uppáhalds videoin hans eru Spaceballs, Jane Fonda's Workout #1 Edition, Dorf on Golf. Og uppáhalds hljómsveitirnar hans eru The Four Tops, Dave Matthews Band og Enigma. Uppáhalds þættirnir hans eru The X-files og Chips. Uppáhaldsstjörnurnar hans eru Alyssa Milano, Jennifer Love Hewitt, Soliel Moon Frye og Bill Clinton og minnst uppáhalds stjörnurnar hans eru Monica Lewinsky, Amy
Fischer, Tonya Hardingog O.J Simpson.

Áhugi Ryans á útsendingum hófs þegar hann var valinn til að kynna Pledge of Allegiance í miðskólanum sínum. Þegar hann var 16 ára sótti hann um vinnu á einni af vinsælustu útvarpsstöðvunum í Atlanda WSTR/Star 94, en honum var neitað um það, en Ryan hélt áfram að reyna og að lokum fékk hann þátt sem var klukkan 7 PM og varð sá þáttur einn vinsælasti á stöðinni. Á meðan hann var að vinna þar hélt hann samt áfram í skólanum og lék með fótboltaliðinu þar. Hann vann á Star 94 á meðan hann var í miðskóla og líka þegar hann var í háskóla. Í háskóla var honum boðið að stjórna daglegum íþróttaþætti Radical Outdoor Challenge fyrir ESPN, sem hann gerði um helgar á meðan hann var í háskóla. Árið 1995 flutti Ryan til LA til að leita að fleiri og betri tækifærum.

Nú er hann kynnir í American Idol og er líka með útvarpsþátt, og hann er alltaf jafn sætur og skemmtilegur.