Paula Julie Abdul fæddist 19 júni árið 1963 í San Fernando sem er í Kaliforníu. Faðir hennar heitir Harry Abdul og móðir hennar heitir Lorraine Abdul, hún er yngsta barnið þeirra. Hún varð fyrir áhrifum af myndinni ‘Singing In The Rain’ og þegar hún var lítil var helsta markmið hennar að verða góður dansari eins og fyrirmyndin hennar, hún Gene Kelly. Hún byrjaði að æfa dans þegar hún var níu ára, og tóku kennararnir hennar strax eftir náttúrlegum hæfileikum hennar til að hreyfa sig og dansa.

Eftir útskrift birtist Paula í leikritinu ‘Junior High School’, samt var draumur hennar ennþá að verða dansari og snemma á níunda áratugnum fór hún í prufu til að verða klappstýra fyrir LA Lakers og fékk hún það. Og varð hún mjög frægur danshöfundur, og varð hún viðurkennd sem mest hæfileikaríkasti danshöfundurinn í Hollywood. Og samdi hún dansa fyrir myndirnar ‘Private School’ (1983) and ‘Coming To America’ (1988) og fyrir mjög vinsæla þætti sem hétu ‘The Tracy Ullman Show’. Janet Jackson réð hana sem danshöfund fyrir tónlistarmyndbandið ‘Nasty’ og einnig hafa George Michael, Debbie Gibson, Duran Duran, INXS and ZZ Top til að semja dansa.

Á þessum tíma hafði Paula eignast mikinn pening og ákvað hún að það væri tími til kominn að láta ljós sitt skína og verða stjarna. Hún notaði peningana og samböndin sem hún hafði myndað til að taka umm demo sem fékk upptökufyrirtækið Virgin America til að taka upp plötu með henni. Árið 1988 í maí tók hún upp og gaf út lagið “Knocked Out” sem varð í 41. sæti. Mánuði seinna kom platan hennar út “Forever Your Girl” og var það hennar fyrsta plata og lá leiðin aðeins upp fyrir hana.

Nú er Paula dómari í American Idol og gengur henni bara vel í því starfi þó að Simon sé stundum að stríða henni, en það er nú bara allt í lagi svona endrum og eins.