Kæru hugarar

Ég sendi inn fyrir einhverjum dögum eða eitthvað þannig inn grein hér á huga sem hét smá fréttir en það var bara einn galli við það að það voru ansi margir sem höfðu lesið þessar fréttir en ég vona að flestir hafi ekki lesið þessar fréttir : )

Lance Bass í ´N Sync vill víst enþá fara út í geim þrátt fyrir þetta slys hjá Columbia í febrúar….

Leikkonan sem allir þekkja, Halle Berry hótar að draga sig út úr væntanlegri kvikmynd um Kattarkonuna eða Catwoman af ótta við lungnabólguna, HABL. Ákveðið hefur að taka hluta myndarinnar upp í Toronto í Kanada en varað hefur við ferðalögum til borgarinnar vegna þess að yfir 30 manns hafi látist vegna sjúkdómsins.
Vinir Berry segja hana hafa áhyggjur af sér og samstarfsmönnum sínum og vilji að hætti verði við kvikmyndatökuna í Toronto.

Victoria Beckam betur þekkt sem snobbaða kryddið í hljómsveitinni Spice Girls sagt fjölmiðlum frá því að hún hafi á tímabili verið mjög nærri því að þjást af Anorexíu. Í viðtali í sjónvarpsþætti sagði hún frá því að hún hafi verið mjög gagntekin af áhyggjum af því sem hún léti ofan í sig. Hún segir samt ekki hafa verið það langt gengin að það mætti kallast sjúklegt, þótt hún hafi farið ansi nærri því.
“You pick up magazines and you see how you are meant to look when you're a famous person. … I mean, I was never anorexic, I was never bulimic, but I was probably very close to it.”….segir hún

Angeline Jolie var síðan að fá sér nýtt tattú…. : þ

Með kveðju Hallat

P.s. Skrifaði þessa grein í gær en hafði ekki tíma til að senda hana inn þannig þið eruð kannski búin að lesa eitthvað í dag!