Smá fréttir  : ) Ég hef nú bara ekki verið í skapi til að senda nokkrar greinar inn á áhugamálið í nokkurn tíma en einhvern veginn langaði mig alveg hræðilega mikið að senda eina grein inn og ætla ég að segja ykkur smá fréttir af fræga fólkið…

Cameron Diaz er hætt með kærasta sínum Jared Leto en þau höfðu verið saman í 4 ár.
Talsmaður leikkonurnar segir þau hafa hætt saman vegna þess þau hafi fjarlægst hvort annað. Vinir leikkonunnar segja Leto hins vegar ekki þolað að kærasta hans nyti meiri velgengi í kvikmyndum en hann sjálfur og hafi því komið enn verr fram við hana.
Diaz og Leto voru nýlega búin að trúlofa sig á ný eftir að Diaz hafði slitið fyrri trúlofun þeirra árið 2000. Þau héldu samt sambandinu áfram þrátt fyrir að sögusagnir um kvenssemi hans hafi loðað við það æ síðan.

Það þekkja nú allir Monicu Lewinsky eftir þetta með Bill Clinton…en allavega hún stjórnar nú veruleikaþætti sem heitir Herra persónuleiki og hóf hann göngu sína á mánudaginn og var áhorf vel yfir meðallagi. Þessir þættir eru þannig að það er ein piparmeyja sem þarf að velja úr nokkrum herramönnum sem eru allir með grímur og skýrir það nafn þáttanna þar sem hún þarf að velja eftir persónuleikanum en ekki útlitinu.

Þetta er ekki alveg ný frétt en fyrir þá sem vita ekki er Catherine Zeta-Jones búin að eignast stúlku en telpan fæddist á páskadagsmorgun og er faðirinn að sjálfsögðu Michael Douglas eiginmaður Zetu-Jones. Telpan hefur hlotið nafnið Carys Zeta Douglas en hún fæddist í Ridfewood í New Jersey í Bandaríkjunum, stutt frá heimili fljölskyldunnar í Manhattan.
Hjónin eiga fyrir soninn Dylan Michael sem er tveggja og hálfs árs. Carys Zeta er annað barn Zetu-Jones en þriðja barn Douglas en hann á einn 24 ára son, Cameron frá fyrra hjónabandi hans.

Þetta finnst mér nóg í bili af fréttum en ef þið vitið þessar fréttir skulið þið ekkert vera með nein skítköst en endilega sendið inn svör við þessari grein ;)

Kv. Hallat