Britney og Justin saman aftur? Það hefur mikið verið skrifað um þau Britney Spears og Justin Timberlake undanfarna mánuði og þá aðalega hjá hverjum þau hafa verið að sofa hverju sinni (Þó að Britney segist vera ennþá hrein mey). Núna hinsvegar gæti þetta allt saman verið að breytast því sagan segir að fljótlega gætu skötuhjúin farið að sjást saman aftur. Það birtist frétt þess efnis á föstudaginn að Britney Spears sakni Justins svo mikið að hún ætli sér að gera hvað sem er til þess að næla í hann aftur. Um helgina hittust þau tvö síðan og eyddu víst kvöldinu saman sem að hefur eflaust endað í funheitum leikfimisæfingum (or not), eða hvað??

Eins og flestum er kunnugt þá hafa Britney og Justin verið “vinir” síðan þau voru lítil, það er kannski svolítið erfitt að hætta að hugsa um hvort annað þó þau fái stundum nóg af hvor öðru. Svona við og við.

Hvað ætli gerist?? (That's difficult question, aren't? :o)

Andrea

Jæja, byrjar gagnrýnin :o)