Nýjasta slúðrið Nýjasta slúðrið :

Oops fyrir Ben Affleck :

Jennifer Lopez ætlaði að vera góð við elskuna sýna og koma honum á óvart með því að kíkja í heimsókn til hans á tökustað nýjustu myndar hans. Þegar hún mætir á staðinn er henni sagt að hann sé inní í búningsherbergi Christinu Appelgate, sem leikur á móti honum í myndinni, að æfa atriði.
Hún bankar á hurðina og gengur strax inn til þess einungis að sjá ástina sína, sitjandi á stól, og Christinu yfir honum dansandi eggjandi dans.
Jennifer, viti sínu fjær af reiði æpir “er þetta í handritinu??!!” og rýkur svo út. Affleck greyjið rýkur á eftir ástinni sinni og nær henni fljótt. Það tekur hann ekki langa stund að róa hana niður og honum tekst jafnvel að fá fram bros hjá henni. Eftir þetta ganga þau saman í hjólhýsið hans alsátt og ánægð.

Sagan var víst sú að Affleck og Applegate hafi verið að æfa þegar hann minnist á að hafa viljað sjá hana leika í leikritinu Pussycat Dolls, í LA, þar sem hún tók einmitt svona senu í sexy undirfötum.



Madonna vingast við dauðvona stúlku

Kerry Yascheshyn, 17 ára, þjáist af lifrarkrabbameini. The Children´s wish foundation veittu henni þá ósk að fá að hitta Madonnu á meðan hún lifði. En það var sko greinilega ekki nóg því nú er Madonna búin að vingast við hana, hún hringir í hana á hverjum degi til að hvetja hana áfram… jafnvel úr farsíma sínum þegar hún er á ferðinni. Móðir stúlkunnar segist varla geta lýst þakklæti sínu.

Móðir Madonnu lést úr krabbameini árið 1963.