Óttast sambandsslit!!!! Kæru hugarar.
Ég var að lesa Á netinu að forráðamenn Columbia séu hræddir um að Jennifer Lopez og Ben Affleck eigi eftir að hætta saman en parið lék saman í myndinni Gigli. Ástæða þess að þeir eru hræddir um þetta sambandsslit er að það fréttist að Jennifer og Ben höfðu verið að rífast einhverju háværu rifrildi.
Jennifer og Ben eiga víst að kynna myndina saman en ef þau hætta saman er mikil hætta að þau neiti að kynna hana saman.

Einn vinur Jennifer segir þau hins vegar hafa jafnað ágreining sinn og að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi því frekar áhyggjur af því að Lopez vilji eyða öllum stundum með Affleck og sé því treg til að fara frá Bandaríkjunum til að taka þátt í kynningu myndarinnar “Maid in Manhattan.”

Ben Affleck lék í myndbandinu Jenny from the block með Jennifer og ef þau eiga eftir að hætta saman sem er frekar líklegt á örugglega að hætta að sýna þetta myndband eða eitthvað en kannski hætta þau ekkert saman því það kemur oft upp hjá besta fólki að það fara aðeins að rífast ef það er í sambandi en annars lifa þau kannski hamingjusöm til æviloka :)